Kynningarnámskeiðið fer fram í nágrenni Reykjavíkur (aldrei meira en klukkutíma akstur frá Reykjavík). Þátttakendur hittast á Laugavegi 11, en þaðan er farið á einum bíl á vegum fyrirtækisins á þann stað sem hentar hverju sinni.
Áður en farið er út í er búnaður kynntur fyrir þátttakendum og farið yfir helstu öryggisatriði. Því næst eru grunnatriðin æfð á landi áður en kennari (eða kennarar) fylgja þátttakendum út í og baráttan við öldurnar hefst. Eftir u.þ.b. klukkutíma kennslu er svo tekin kakó pása á meðan kennarinn fer yfir hvernig gengið hefur, hvað má betur fara, ásamt því að gefa ábendingar áður en haldið er aftur út í sjó.
Lengd ferðar: 5-6 klukkutímar.
Verð: 14.990
Innifalið í verði:
- Allur búnaður; 6mm blautbúningur, skór, hanskar, bretti og ól.
- Kennsla, miðast við 8 þátttakendur á kennara í 5-6 klukkutíma.
- Akstur frá Laugavegi 11 (Cintamani búðin) á surfstað og til baka.
- Heitt kakó og hressing.
ATH: Hægt er að uppfæra námskeiðið í 3 daga pakkann, þ.e. bæta við tveimur dögum og láta það sem búið er að greiða ganga upp í verðið á 3 daga námskeiðinu