Leigðu búnað!
Ef þú hefur prófað námskeið hjá okkur, hefur fiktað við íþróttina í útlöndum eða langar bara að fylgja vini þínum á námskeið sem þú hefur áður farið á, þá bjóðum við upp á útbúnað til leigu.
Iceland Surf Project notar einungis topp búnað. Þar sem búnaðurinn dýr og erfitt að endurnýja hérlendis lánum við hann ekki hverjum sem er.
Brimbrettaíþróttin getur verið hættuleg fyrir þá sem hafa ekki fengið neina kennslu og val á réttum aðstæðum er lykilatriði ef gæta á fyllsta öryggis.
Því viljum við ekki að fólk noti okkar búnað án þess að hafa fengið kennslu frá okkur, né noti búnaðinn í aðstæðum sem við teljum ekki öruggar.
Leigan virkar því þannig…..
1. Þú klárar námskeið hjá okkur (1 dag eða 3 daga, þó við mælum með lengra námskeiðinu því íþróttin er mun erfiðari en margir halda), eða sýnir fram á samskonar reynslu af brimbrettaiðkun, t.d. surf námskeið í útlöndum.
2. Pantar búnað til leigu.
3. Við setjum þig á lista og látum þig vita með tölvupósti eða sms áður en farið er í surf.
4. Þú lætur okkur vita hvort þú viljir fara með.
5. Mætir á Laugaveg 11 (Cintamani búðin), borgar fyrir leiguna og ferð svo með á okkar bíl í surfið.
Verð: 7.500 kr.
Innifalið í verði:
- Allur búnaður í einn dag; 6mm blautbúningur, skór, hanskar, bretti og ól.
- Akstur frá Laugavegi 11 (Cintamani búðin) á surfstað og til baka.
ATH: Kennsla er ekki innifalin í útbúnaðarleigunni, lántaki er á eigin ábyrgð og ekki hluti af kennsluhópnum.