Bookmark and Share

Þriggja Daga Surfnámskeið Frá Reykjavík


Þriggja daga námskeiðið fer fram í nágrenni Reykjavíkur (aldrei meira en klukkutíma akstur frá Reykjavík). Þátttakendur hittast á Laugavegi 11, en þaðan er farið á einum bíl á vegum fyrirtækisins á þann stað sem hentar best hverju sinni.

Kennsla á fyrsta degi er sú sama og á eins dags námskeiðinu (sjá "Kynningarnámskeið"). Byrjað er að fara yfir öll öryggisatriði, grunnatriði íþróttarinnar kennd og búnaðurinn kynntur fyrir þátttakendum. Kennari fer svo með þátttakendum út í og surfið hefst.

Dagur 2 og 3 eru í raun framhald af fyrsta deginum. Grunnatriðin eru rifjuð upp á degi 2 og fer það svo eftir færni þátttakenda hversu hratt kennslunni miðar. Ef þátttakendur eru enn í baráttu við grunnatriðin (sem er ekki ólíklegt enda mjög krefjandi íþrótt) þá er skerpt á þeim atriðum. Námskeiðin henta bæði algjörum byrjendum og svo þeim sem hafa fiktað við íþróttina áður.

Á degi 3 er svo haldið áfram að pússa tæknina, reynt er að finna meira krefjandi öldur og að lokum farið yfir þá grunnþætti sem skipta mestu máli við val á réttum aðstæðum. Fátt er leiðinlegra en að keyra klukkutíma út úr bænum og komast ekki að því fyrr en á staðinn er komið að það er annað hvort ekkert surf eða alltof erfiðar aðstæður miðað við kunnáttu.

Lengd ferðar: 5-6 tímar á dag.

Verð: 34.990 kr.

Innifalið í verði:

- Allur búnaður í þrjá daga; 6mm blautbúningur, skór, hanskar, bretti og ól.

- Kennsla í þrjá daga, miðast við 8 þátttakendur á kennara í 5-6 tíma á dag.

- Akstur frá Laugavegi 11 (Cintamani búðin) á surfstað og til baka alla þrjá dagana.

- Kakó og hressing alla þrjá dagana.

ATH: Ekki er hægt að tryggja að þriggja daga námskeiðið fari fram þrjá samfellda daga í röð. Hægt er að nota þessa þrjá daga yfir mánaðar tímabil, hvenar sem hentar þátttakendum best og aðstæður leyfa. Þáttakendur eru þá settir á póstlista Iceland Surf Project og þeim sendur tölvupóstur með 3ja daga fyrirvara þegar von er á góðum öldum.