Bookmark and Share

Um Iceland Surf Project


Sameiginlegur áhugi á snjó- og brimbrettum leiddi okkur (Ella og Ingó Olsen) saman um aldamótin 2000 og síðan þá höfum við lent saman í ýmsum ævintýrum innanlands sem utan. Í gegnum árin höfum við komist að því hversu einstakt surfið á Íslandi er. Við höfum rekist á ófáa atvinnusurfara, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmenn sem komið hafa til Íslands einungis í þeim tilgangi að surfa við strendur landsins. Einnig höfum við sjálfir ferðast um heiminn í leit að öldum, en aldrei verðum við fyrir vonbrigðum þegar við komum aftur heim.

Fyrstu árin lentum við oft í því, þegar einhver sá okkur strappa brimbretti á toppinn á bílnum, að vera spurðir að því hvort það væri virkilega hægt að surfa á Íslandi. Eru einhverjar öldur? Er þetta ekki ógeðslega kalt? -Jú það eru öldur (Ísland er eyja í miðju Atlandshafi!!!), og nei þetta er ekki kalt ef þú ert í réttu græjunum.
 
Síðustu árin hefur svo spurningunum fækkað og áhugi hefur aukist á því að surfa á Íslandi. Við höfum séð fleiri nýliða út í sjó, en fáir þeirra hafa endst í sportinu. Að okkar mati er um að kenna röngu vali á brimbrettum, lélegum útbúnaði og vanmati á aðstæðum. Erfitt er að læra á brimbretti einsamall og það flýtir töluvert fyrir og eykur ánægju að læra þau grunnatriði sem til þarf til þess að geta surfað sína fyrstu öldu. Þegar þessari fyrstu almennilegu öldu er náð er svo ekki aftur snúið!!

Við stofnuðum þennan brimbrettaskóla til þess að geta kennt fólki á öllum aldri grunnatriðin í brimbrettaiðkun, við sem bestar aðstæður og í sem bestum búnað, svo sem flestir geti notið þess að surfa á Íslandi og öllu sem því fylgir.